Sæl og blessuð öll
sömul.
Þá er loksins komið að því að ég
reyni að nota þessa síðu mína eitthvað, en eins og kom fram þá fer
síðunum í bæklingnum mínum fjölgandi (brjósklosið) þannig að ég
kannski hef smá tíma til að skrifa eitthvað.
Þegar síðast var skrifað þá leið að
komu þeirra mæðgnanna hingað og gékk það eins og til stóð og líkar
þeim bara mjög vel hér, að vísu finns Malí frekar kalt hérna en
finnst það allt í lagi nema þegar er vindur, þá finnst henni
kalt.
Melissu aftur á móti finnst þetta
fínt og þykir bara gaman að leika sér í snjónum og helst
vettlingalaus, hún er byrjuð á leikskólanum og okkur skylst að hún
stjórni honum með röggsemi.
Malí er búin að fá dvalarleyfið og er
byrjuð að vinna í fiski en langar til að sækja um vinnu hjá ALCOA
síðar meir, hún er einnig byrjuð í Íslenskunámi en það mætti vera
oftar kennsla þar, einu sinni í viku er varla nóg. Og eins og allir
hafa heyrt í umræðunni undarfarna daga þá eru margir útlendingar á
Íslandi og er það bara fínt fyrir hana því það eru 5 aðrir
Tælendingar hér á Fáskrúðsfyrði þannig að hún hefur eignast fleiri
vini en ég hérna 
Af mér er það að frétta að ég er enn
í vinnu hjá Olíudreyfingu en er farinn að vinna miklu minna en
áður.... ekki nema 12 tima á dag og aðeins á virkum dögum, en er
reyndar kominn með ákveðið verksvið þar, ég sé semsagt um að dreyfa
olíu í útlöndum, nánar tiltekið á byggingarsvæði ALCOA þar sem
íslenska er talin lúxus og meira ber á pólsku (Pólverjarnir verða jafnvel
vondir þegar þeir heyra að maður skilji ekki stakt orð af því sem
þeir eru að segja) en það tungumál er hið opinbera mál hérna en það
gengur fínt, þegar þeir tala við mann á pólsku þá fer maður bara að
tala um veðrið á íslensku og keyrir svo bara áfram ...hehehehe...
Annars byrja ég svo í ALCOA í janúarbyrjun.
Bílaflotinn okkar stækkar jafnt og
þétt er kominn upp í 3 bíla en mamma og pabbi hafa Opelinn en ég er
kominn á jeppa (að sjálfsögðu) og Malí þyrfti bíl til að komast í
vinnu og á leikskólann með Melissu þannig að við keyptum Mösdu
handa henni (svona frúarbíl í innanbæjarsnattið)
Það hefur fjölgað aðeins í
fjölskyldunni, Ýmir fékk sér hund sem býr hjá okkur á meðan hann
skreppur til mömmu sinnar í hálfvitalandi. Hún er 14 vikna border
collie sem gengur undir nafninu Spotta (ég kalla hana annaðhvort
shithead eða chicken).
Talandi um fjölgun þá eignuðust Ásta
og Bastian stúlku í gær (9/11) og er áætlað að kíkja á þau á morgun
en þau komu heim í dag vegna hugsanlegs óveðurs seinna í
dag.
Húsið er fínt, svona gamalt hús með
sál eins og Ýmir segir og er málningarvinnu að verða lokið og erum
að byrja á að klæða svefnherbergin uppi núna um helgina, síðan
seinna í vetur er planið að gera verkstæðið mitt að lítilli
studioíbúð fyrir gesti.
Ég ákvað loksins að gera tilraun til
að tala við lækna hérna núna fyrir skemmstu og þegar ég sagði honum
skýringu mína fyrir minni litlu trú á stéttinni hans svaraði hann
að hann skyldi það vel því að hann hefði unnið mikið með dönskum
“læknum” og hans álit var að þeir væru afspyrnulatir og lítið fyrir
það gefnir (kannski lítið gefnir
) að taka af skarið og vilja
finna hvað er að fólki vegna þess að þá þyrftu þeir að bera ábyrgð
á gerðum sínum.
En hvað um það hann sagði að ég
þyrfti að fara í röntgen og sneiðmyndatöku vegna baksins, og varð
ég hugsi að nú þyrfti ég að bíða í nokkrar vikur... nei ekki
aldeilis, daginn eftir var ég myndaður í bak og fyrir og
niðurstöðurnar lágu fyrir innan viku (eitthvað annað en hjá
fíflunum í danaveldi) reyndist brjósklosið ekki eins alvarlegt og
gat verið og er góður möguleiki á að það lagist með góðri hvíld og
rúmlegu, þannig að ég að sjálfsögðu fylgi ráðum hans og vinn bara 6
tíma á dag núna ...
Jæja þetta læt ég duga í bili og lofa
því EKKI að vera fljótur með næsta skammt
Hugsið vel um ykkur (sérstaklega þeir
sem enn búa þarna hinumegin við hafið því ekki er þorandi að
treysta á föllnu guðfræðingana)
Þangað til næst
BÆBÆ